Hjóladagur

Kiddi minn fékk Harley af stæðsu gerð í fyrradag, fór á rúnktinn því það var örlítið langt síðan hann var að hjóla síðast en eftir æfinga aksturinn til þess að koma sér í form aftur þá kom hann heim og Bjössi vinur með .. Ég fékk að vera hnakkaskrautLoL, mikið rosalega er þetta gaman.Nei nei það er ekki svo gott(ég má ekki eiga það) því að hann varð auðvitað að skila Cryingþví aftur því að við vorum bara að fá að prófa þetta hjól það væri ekkert leiðinlegt að eiga slíka græju og nú er ég enþá ákveðnari í að taka prófið allavega, en nú verður biðin eftir því að hafa peninga til þess að kaupa hjól og taka síðan erfiðari því í forgangsröðuninni er að lappa upp á húsið og kaupa nýrri jeppa á undan Blush . En á meðan við bíðum látum við okkur dreyma um Goldwing eða eitthvað álíka  

tilbreyting

nei ekki þannig .. fórum í útilegu nr:6 á þessu sumri ,núna fórum við á Þórisstaði með krakkana með okkur, svo komu kunningjar okkar á laugardaginn .. Þessi helgi var skemmtileg og fróðleg svo ekki sé meira sagt við lærðum ýmislegt nýtt um lífið bara á því að spjalla við þessa frábæru kunningja sem koma úr læknastétt, veðrið lék við okkur og að vanda voru teknar grilljón myndir. hitti nokkra Garðbúa á staðnum. skemmtilega skemmtileg helgi ..

hver bað um uppfærslu

ókey er ekki rétt að blaðra aðeins.. Við erum bara á ferðalagi um hverja helgi, tókum langa frí helgi um síðustu helgi og vorum á Laugarbakka í Holtum fram á þriðjudag vorum með Bjarna Frey með okkur og auðvitað Tívolí-Bombu við erum sólbrennd og sæt eftir þá helgi og auðvitað er stefnan tekin í ferð um helgina, hvað annað. Laugaland er með betri tjaldsvæðum sérstaklega vegna þess hve vel er hugsað um svæðið .

Mamma hennar Tívolí kom í heimsókn til okkar í gær og kom með ræktendur Tívolí og Bombu með sér. Tívolí er bara nokkuð lík mömmunni á ýmsan hátt, gaman að hitta ræktendurnar við og við og fá ráð hjá þeim varðandi ýmislegt eins og t.d. hver gæti hugsanlega verið góður til undaneldis með Bombu þegar þar að kemur .

Það er ýmislegt í pípunum hjá okkur hjónakornum þessa dagana sem hugsa þarf gaumgæfulega, það er reindar með ólíkindum hvað við erum með líka hugsun miðað við hversu ólík við erum ,, alltaf á sama plani.. meira síðar um það ..................  


minn kæri.

ástin mín á afmæli í dagIMG 8197InLove                                 

Innilega til hamingju ástin mín............


hefði nú

hverskonar aumingja skapur er þetta --flokkast ekki undir að vera mannúðlegt -- hefði ekki verið nær að flytja dýrið burt til heimkynna sinna Angry
mbl.is Ísbjörninn felldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

til umhugsunar

Svona er þetta

Ef að dýr veiða fólk þá eru þau grimm en ef fólk veiðir dýr þá er það hetjur ..hugs hugs .... ekki alveg sanngjarnt


mbl.is Ljón átu starfsmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lóð...........

Tókum eftir því í dag að Tívolí væri byrjuð að lóðaW00ten hún verður ekki 6 mánaða fyrr en um þar næstu helgi, vorum ekki byrjuð að spá í þetta þar sem Bomba byrjaði ekki fyrr en 7 mánaða,eitthvað fannst okkur samt undarlegt hvað hann Bangsi sem á heima í næsta húsi er búin að væla mikið í dag og í gær, skildum það þegar við tókum eftir þessu, eins gott að passa hana vel ..Það er kannski ágætt að hún byrjar svo snemma ég var farin að hafa áhyggjur af því að hún yrði of stór en þær hætta að stækka að mestu þegar þær lóða.

Við fórum með Bombu í parvó og ormahreinsun í dag fengum líka ormahreinsun fyrir Tívolí þar sem þær voru eins og packmann um daginn þegar þær hlupu um á túni sem var fullt að gæsaskítSick .. 

 viðbót á þetta :

eruð þið búin að lesa þessa raunasögu, þetta er vægast sagt hræðilegt Crying 


Faxi.

fórum með hjólhýsið okkar með okkur að tjaldsvæði Faxa í Biskupstúngum sem er við fossinn Faxa og tungnaréttir, ákaflega fallegt svæði og skemmtilegt að vera þarna er hreinlætisaðstaða ekki neitt til að hrópa húrra fyrir en eins og áður sagði þá er svæðið ákafleg fallegt og þess virði að fara þarna bara þess vegna, það skiptir helur ekki máli með aðstöðu þegar maður er með hjólhýsi. IMG 8252

 

Hér er Kiddi við fossinn Faxa.

 

 

 

 

 

Bomba og Tívolí nutu útiverunnar

IMG 8261Hér kom Tívolí í ljós eftir að við tíndum henni eitt augnablik við útsýnis pall sem er við fossinn, sjáið þið þegar hún skríður undan pallinum..

 

 

 

 

 

 

IMG 8205

 

 

Bomba dundaði við að flækja Tívolí og þetta var árangurinn ..W00t

 

 

 

 

 

IMG 8227

 

þær stöllur skemmtu sér vel .

 

 

 

 

 

 

 IMG 8195

 

Við hjónin grilluðum okkur nautasteik á laugardagskvöldið með fylltum paprikum og grilluðum kartöflum, svona rómó dinner fyrir tvo þar sem við vorum barnlaus að þessu sinni ...girnilegt ekki satt

 

 

 

 

Þetta er Kiddi minn sem rústaði mér í rommý um helgina en ég er miklu IMG 8197heppnari fyrir vikið í ástum , sjáið bara manninn sem ég er gift heppin ég !InLove

 

 

 

 

 

 

IMG 8201

 

 

Hér er svo frúin sjálf að gera sig klára í að fara úða í sig


já það var farið

Kiddi minn InLoveer úti að slá núna og ég er bara inni að blogga og laga á mér neglurnar, eiginlega hálf asnalegt að vera ekki að hjálpa tilBlush en við þurfum svo sem ekki bæði að halda á sláttuvélina, þá er bara að blogga smá .. 

Fórum í fyrstu útilegu sumarsins um síðustu helgi, fórum á laugardeginum íIMG_8129Fossatún sem er alveg ágætur staður til að vera á aðstaðan alveg ágæt ( ekkert frábær ) við fengum hið besta veður , hittum Kristínu og Gunna þar og plöntuðum hjólhýsinu við hliðina á þeim ..  Skruppum svo á sunnudaginn í bíltúr og fórum í sveitina til Diddu og Steina í Laxó, það er alltaf svo yndislegt að hitta Diddu frænku.

 

 

 hér er Bjarni Freyr að alveg vakna í hjólhýsinu á mánudagsmorgunin IMG_8183en samt kominn fram úr ..

 


myndir frá

Við Kleifarvatn

 Hér eru myndir frá því við fórum í Krísuvík síðast 

 

 

 

 

 

 

 

Alma GlóðHér er hún Alma Glóð 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lilja Björt

 

Hér er hún Lilja Björt

 

 

 

 

 

 

 

IMG_7922

 

hér eru Tívolí og Bomba að njóta umhverfissins

 

 

 

 

 

 

hverasvæðið í Krísuvík

 

Hér erum við komin á hverasvæðið í Krísuvík ekki man ég hvort það heitir eitthvað.

 

 

 

 

 

Kiddi og dæturnar

 

Pabbinn með prinsessurnar sínar

 

 

 

 

 

 

IMG_7956

 

Hér er mikil litadýrð eins og sjá má.

 

 

 

 

 

 

IMG_8006

 

Hér erum við komin á Reykjanestánna, ekki dónalegt útsýni.

 

 

 

 

 

 IMG_8009

 

Hér má sjá Eldey ekki svo langt undan

 

 

 

 

 

 

IMG_7996

 

 

Tívolí og Bomba með Reykjanesvita í baksýn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband