helgin ..
29.5.2007 | 16:15
fórum ekkert um helgina en loksins voru fataskáparnir settir upp í svefnherberginu okkar en viti menn auðvitað gat þetta nú ekki allt passað, hurðirnar og háar
( ekki okkur að kenna ) sem betur fer þá mældum við ekki sjálf svo að það verður bætt ( hlýtur að vera ) ..
Við fengum skemmtilega heimsókn líka ,Ólína( býr í Noregi ) vinkona mín og partur að hennar fjölskyldu komu við hjá okkur , þau voru í stuttri heimsókn hér, mikið ferlega var gaman að hitta þau við Ólína höfum ekki hist í allmörg ár ,, en við erum búnar að þekkjast síðan við vorum c.a. 12 ára gamlar og einhvernvegin þá lágu leiðir okkar í sitthvora áttina en með mínu bloggi þá komst ég í samband við hana aftur .. við vorum reyndar 4 vinkonur á árum áður en misstum kontakt allar saman ..en ferlega gaman að hittast aftur, Ólína þú hefur ekki breyst neitt
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Víkingaspilið.
27.5.2007 | 17:09

Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
hvernig er það á ekkert að fara að hlýna
25.5.2007 | 09:36
þetta fer nú að verða hálf ógnvekjandi það er kominn 25 maí og í morgun þegar ég fór út í bíl með stjúpdætrum mínum þá snjóaði, ég gat ekki annað en hugsað til þess að eftir 14 daga erum við komin í sumarfrí hvernig skildi veðrið verða þá og við erum ekki með nein útlandaplön að þessu sinni .Það er planað að gera eins og við gerðum sumarið 2005 fara í ferðalag um landið í kannski 4 vikur ..þetta fer að verða spurning um hvort að við þurfum að taka með okkur snjógalla ,sé ekki alveg fyrir mér þessa dagana að það verði stuttbuxur ..
Við og börnin förum allavega af stað í sumarfrí 8 júní eða umbaðbil, eitthvert út í bláinn með nýju myndavélina að vopni spurning hvort myndirnar verði fallegar vetrarlegarsumarmyndir eða hvor að sumrið nær að komast að og myndirnar verða sumarlegar og sætar.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
komin aftur .
21.5.2007 | 10:10

ferðin
15.5.2007 | 14:17
þá er heldur betur að styttast í parísar ferðina, ég var áðan að athuga hvort það væri laust pláss í siglingu og kvöldverð á Signu ,á eftir að fá svar ( vonandi ). Förum snemma í fyrramálið eini gallin er að það er eitt stopp á leiðinni út ,það verður millilent í Amsterdam en sleppum við það á leiðinni heim ,
viðbót :er búin að fá staðfestingu með siglinguna svo að á föstudagkvöldið verður það sigling á Signu með kvöldverði hér er linkur frá þeim .
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
viva la france.
14.5.2007 | 13:21
ég og minn heitt elskaði eiginmaður erum að fara til Parísar á miðvikudaginn, komum heim á sunnudag
fórum í útilegu um helgina, fórum í þrastaskóg voða næs en ekki var nú Kiddi minn ánægður með að sjónvarpið næst ekki þar en engu að síður þá var helgin yndisleg blanka logn og fínt, skruppum í bæinn á laugardagsmorgunin og kusum rétt ( höldum það allavega þar til annað kemur í ljós ) ..
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
þetta er hræðilegt.
9.5.2007 | 09:48
![]() |
Drengur lést í trampólínslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
námskeið.
8.5.2007 | 11:10
Erum á hvolpanámskeiði með Bombu prinsessu, í gær var tími nr 2, gengur bara vel , maður lærir töluvert sjálfur á þessu um hvernig er best að umhverfisvenja vel og þess háttar . það eru allir bræður hennar Bombu á sama námskeiði , gaman að fylgjast með hvað er mikill munur á þeim í stærð Bomba er líklega næstum kílói léttari öll nettari og minni ,hún er líka eina stelpan og á auðvitað að vera minni ( ein af mörgum ástæðum fyrir að ég vildi frekar tík)
viðbót skrapp á hundasnyrtistofu og keypti reitingarhníf og undirfeldsköfur , þá er mér næstum ekkert að vanbúnaði að snyrta Bombuna mín ,vantar bara borðið en því redda ég á morgun, það margborgar sig að læra að snyrta sjálfur , borgar sig upp á ca 6 mánuðum, en það þarf að lata snyrta snauzer á 3 mánaða fresti
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
jóla hvað..
4.5.2007 | 09:35
Gunna: Mikið voru blessuð jólin frábær. Fékk þvílíkt flottar gjafir og frábæran mat. En þú Fjóla mín var ekki allt eins og best var á kosið ??????
Fjóla: Ja Gunna mín, þetta var nú ekki alveg eins og best hefið verið. Nú klukkurnar hringdu inn jólin og ég var komin í mitt fínasta púss og gargaði á liðið að fá sér að borða.
Nú allir ruddust að borðinu og gerðu sér að góðu jólamatinn, nema þegar ég var á fullu sving að fá mér "væna flís af feitum sauð", heyrðist í Palla mínum, "Heyrðu Fjóla mín, viltu ekki fara smá varlega í matinn, þú lítur orðið út eins og heybindivél í vextinum".
Ég bara fékk flog, en hélt þó haus og var ekkert að æsa mig. Svo þegar búið var að opna pakkana og allir farnir að lúlla þá vildi nú Palli minn fá sitt!!!!
Ég snéri mér og horfði fast í augun á honum og sagði;
"ELSKU PALLI ÞÚ SKALT NÚ EKKI HALDA AÐ ÉG RÆSI HEILA HEYBYNDIVÉL FYRIR EITT LÍTIÐ STRÁ"
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Dýrustu buxur heims
3.5.2007 | 13:33
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)