hálkulaust þá má ég ...

Jamm hálkulaust áðan og þá má ég fara út í smá gönguferð, fékk Bjarna Frey til að koma með mér því ég treysti mér ekki ennþá til að halda í báða hundana, fórum nú ekki langt vorum örugglega 20 mínútur sem er betra en ekkert vonandi kemst ég í lengri ferðir síðar .

 Ætluðum niður á Austurvöll í dag en einhvernvegin varð ekkert úr því kannski líka best ég þoli svo illa kulda eftir slysið, fylgdust með í sjónvarpinu í staðin, ótrúlegt hvað fólk hefur mikla þörf fyrir að grýta alþingishúsið með allskyns drasli í hvert einasta skipti þegar þessi annars friðsömu og svo mjög þörfu mótmæli eru, mér finnst það til háborinnar skammar.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Það er gott að þú komst út að ganga í 20 mínútur. Það er örugglega framför og seinna getur þú meir. Ég var á Austurvelli og sá aðeins fólk sem sýndi samhug og hegðaði sér vel.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 23.11.2008 kl. 16:52

2 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Það er því miður tilhneiging til að beina myndavélunum að fíflunum 3 sem alltaf leynast inn á milli.

Kristín Guðbjörg Snæland, 25.11.2008 kl. 14:47

3 Smámynd: Olina Kristinsdottir Gulbrandsen

Finnst þú vera dugleg að koma þér út og ganga. Allt er betra en ekkert. Farðu vel með þig stelpa!

Olina Kristinsdottir Gulbrandsen, 25.11.2008 kl. 21:01

4 Smámynd: www.zordis.com

Fardu mjög gaetilega med zig kona. Haegt og sígandi verdur zú ordin spraek og hraust eftir bílslysid.

Svo eru bara ad skella á jólin ....

www.zordis.com, 26.11.2008 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband