Tívolí ....
26.11.2008 | 14:55
Tívolí er eins árs í dag ...
annars er það að frétta að ég fór til bæklunarlæknis í gær og hann staðfesti það sem sjúkraþjálfarinn sagði að þetta myndi taka einhverja mánuði en ég fer líklega að vinna eitthvað smá eftir helgina "ekki nema bara smá segir Gísli sjúkraþjálfari" . Læknirinn ætlar að senda mig í segulómun með fótin og bakið, reiknar með því að eitthvað vesen sé með krossband og liðþófa og vill bara fá betri vitneskju um bakið.
Tengdamamma og systur Kidda og mákona hans voru að baka sörur um síðustu helgi og gerðu ráð fyrir þessar elskur að ég myndi ekki treysta mér í slíkan bakstur fyrir þessi jól svo að þær gerðu aukaskammt og gáfu okkur, það er ekki hægt að segja annað en það er gott að eiga góða að, því þetta var alveg rétt hjá þeim ég treysti mér engan vegin í þetta núna þó svo að mig langi, þær eru bara gersamlega búnar að bjarga jólunum fyrir Ölmu Glóð og Bjarna frey ( Lilju Björt finnst ekki sörur góðar) Svo sörubökunarmeistararnir fá knús og þakkir frá okkur þær eru yndislegar alveg hreint..
Athugasemdir
Til lukku með daginn Tívóli og co. Gott að láta skoða allt vel og vandlega. Góðir hlutir gerast hægt. Og er það nú alltaf þannig að þegar eitthvað bjátar á hjá manni þá veit maður hver er vinur mans og hver ekki.
Kristín Jóhannesdóttir, 26.11.2008 kl. 15:31
Til hamingju með afmælis barnið (voffann) , vonandi nærð ´þú þér fljótt
Guðborg Eyjólfsdóttir, 27.11.2008 kl. 09:26
Til hamingju með Tívolí
Það er leiðinlegt hve lengi þú hefur átt í þessu en gangi þér sem best að ná þér aftur.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 27.11.2008 kl. 11:41
Til hamingju með voffa...
Góðan bata!
Olina Kristinsdottir Gulbrandsen, 27.11.2008 kl. 13:58
Tívólí er s.s bogamaður til hamingju með þetta sætagerpi
Solla Guðjóns, 28.11.2008 kl. 01:30
Kvitterý og knússssssssssssssssss!
Í vona um skjótan og góðan bata.
Bessý (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 21:07
Sendi þér mátt og kærleik í veikindum þínum .
Þ Þorsteinsson, 3.12.2008 kl. 23:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.