Lóð...........
20.5.2008 | 22:33
Tókum eftir því í dag að Tívolí væri byrjuð að lóðaen hún verður ekki 6 mánaða fyrr en um þar næstu helgi, vorum ekki byrjuð að spá í þetta þar sem Bomba byrjaði ekki fyrr en 7 mánaða,eitthvað fannst okkur samt undarlegt hvað hann Bangsi sem á heima í næsta húsi er búin að væla mikið í dag og í gær, skildum það þegar við tókum eftir þessu, eins gott að passa hana vel ..Það er kannski ágætt að hún byrjar svo snemma ég var farin að hafa áhyggjur af því að hún yrði of stór en þær hætta að stækka að mestu þegar þær lóða.
Við fórum með Bombu í parvó og ormahreinsun í dag fengum líka ormahreinsun fyrir Tívolí þar sem þær voru eins og packmann um daginn þegar þær hlupu um á túni sem var fullt að gæsaskít ..
viðbót á þetta :
eruð þið búin að lesa þessa raunasögu, þetta er vægast sagt hræðilegt
Athugasemdir
Nú þarf að passa stelpurnar fyrir strákunum
Já ég var búin að lesa um þetta hjá Kidda en ekki það sem byrt var síðast.Það þarf svo sannarlega meira eftir lit með hundaræktun.Þetta er hræðilegt
Solla Guðjóns, 21.5.2008 kl. 23:44
Bara orðin stór daman :)
En já þetta er skelfilegt að lesa :( Því miður hafa viðskipti við þetta bú oft verið kaupanda í óhag og ef þetta væri hrossabú væri búið að loka því fyrir löngu
Vatnsberi Margrét, 22.5.2008 kl. 00:37
Já nú þarftu að passa stelpuna.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 24.5.2008 kl. 13:03
litla dúllan bara ordin stór!
Agalega lesning og midur ad ekki skuli vera tekid hardar á málum!
www.zordis.com, 24.5.2008 kl. 14:33
Þetta er skelfileg lesning um þessa hunda þarna í Dalsmynni og vonandi að fólk fari nú ekki að kaupa sér hund þarna.
Min var 7 mánaða þegar hún byrjaði að lóða og eins gott að passa þessar dúllur svo þær fari nú ekki að eiga hvolpa strax
Guðborg Eyjólfsdóttir, 28.5.2008 kl. 08:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.