Pabbinn.
26.1.2007 | 09:25
Við fórum á frumsýningu á leikritinu pabbinn í Iðno í gærkvöldi þetta er yndislega skemmtilega yfirmáta fyndið, við grenjuðum af hlátri , besta skemmtun sem hægt er að hugsa sér,þetta er skemmtilega ýkt lýsing á hvernig samband getur verið á milli hjóna/ para eftir að barn kemur í heiminn. Þetta leikverk er sjáfstætt framhald af hellisbúanum, sem ég sá aldrei, þannig að ég get ekki borið það saman leikritin en mér var sagt í gærkvöld af einum sýningargesta hún heitir Margrét ( eins og ég he he) og var/er leikari að þetta sé miklu skemmtilegra en Hellisbúin var.. við borðuðum líka í Iðno, bara þessi fíni matur, ég get hiklaust mælt með þessu, Kiddi fylgdist með leikslokum hjá Ísland -Póland á meðan við borðuðum forréttinn he he, máttum auðvitað ekki missa af þessu Ísland átti nefnilega að vinna en töpuðu svo ,djö marr ..
En trúið mér þið megið ekki missa að þessari ofur skemmtilegu og fyndnu sýningu nema að þið séuð yfirmáta miklir fýlupúkar . Mér datt í hug í fyrradag að athuga með miða á frumsýninguna og fullt af miðum til en ég var eitthvað að gaufast með þetta og ,viti menn allir miðar búnir ,ok ætlaði þá bara að reina að fá mið seinna en Kiddi minn sem þekkir alltaf fólk út um allan bæ var komin með loforð fyrir miðum fyrir hádegi í gær ..
Athugasemdir
tek stefnuna á Iðnó hehe
Ólafur fannberg, 26.1.2007 kl. 09:48
á ekki vídeo lengur ,bara dvd ..annars hefði ég sko endilega viljað það ..bestu þakkir kæri bróðir
Margrét M, 26.1.2007 kl. 11:20
þetta var endalaust fyndið og er enn fyndið ..humm þú hefur þá sitið til borðs við vegginn he he .. skemmtileg tilviljun .. það kom mynd af Kidda inn á Idno.is myndatökumanni hefur ekki þótt ég nógu myndarleg ..fliss
Margrét M, 26.1.2007 kl. 11:53
það er víst ekki hægt að kenna þér um Guðmundur en horfðu á næsta leik og sjáum til hvað gerist ....
jamm yndislegi maðurinn minn var með stillt á útvarpið beina lýsingu á leiknum ..við vildum ekki missa af þessu ...he he
Margrét M, 26.1.2007 kl. 14:22
Kanski maður ætti bara að skella sér heim í smá leikhúsferð
Kolla, 26.1.2007 kl. 18:45
Kanski maður ætti bara að skella sér heim í smá leikhúsferð
Kolla, 26.1.2007 kl. 18:45
Ég er búinn að sjáhellisbúann á myndbandi... frábært. Nú er bara að kaupa Pabbann
Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.1.2007 kl. 22:26
Já nú er bara að skella sér á klakann og sjá Pabbann.. ég hef séð Hellisbúann bæði á Íslensku og norsku í leikhúsi... "frábær" svo nú verð ég að sjá Pabbann líka
Góða helgi!
Olina Kristinsdottir Gulbrandsen, 26.1.2007 kl. 23:03
Ólína þú kemur og fer á pabban og kíkir svo í kaffi...eða rauðvín
Margrét M, 26.1.2007 kl. 23:05
Eftir að hafa lesið um leikritið hjá Guðm.J þá kemur ekki annað til greina en að fara. MM þú styrkir þetta og héðan er ekki afturkvæmt. Flugmiði ALC til KEF og til baka plús leikhúsmiði, hótel og alles. Ég hef oft eytt meiru fyrir minna.
www.zordis.com, 27.1.2007 kl. 23:36
Hljómar spennandi
Kveðja Sigrún
Sigrún Friðriksdóttir, 29.1.2007 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.