bessuð jólin
27.12.2006 | 15:55
erum búin að vera að borða í 3 daga. endalaus jólaboð o.þ.h. eins gott að ég er ekki týpan sem borðar yfir sig þá væri ég örugglega hnöttótt ..Ekkert að gera í vinnuni á milli jóla og nýárs ,veit eiginlega ekki afhverju það er opið þessa dagana ..
Ég fór með stelpurnar með til að kaupa jólagjöf sem átti að vera frá krökkunum til Kidda ,og við fórum í Herragarðinn og vorum að velja hálsbindi og þá spurði Alma Glóð þann sem var að afgreiða okkur "eru bindin vinsæl " já sagði maðurinn, þá spurði hún " af hverju ert þú þá ekki með bindi " svo setur hún upp hneykslunarsvip og heldur áfram ,"varstu ekki að segja að bindinn væru vinsæl ,svo ertu ekki með neitt bindi sjálfur " maðurinn verður frekar vandræðalegur
og segir að hann eigi bara eftir að gera það ... mér fanst þetta nú bara frekar fyndið he he ..
Athugasemdir
kvitt Sama hér vömbin hefur stækkað og viktin gefist nánast upp á yfirvikt
Ólafur fannberg, 27.12.2006 kl. 16:17
Ég finn fyrir öllum jólamat... ætla að byrja að æfa eftir jól
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.12.2006 kl. 22:33
Já þau eru skemmtilega hreinskilin börnin
Olina Kristinsdottir Gulbrandsen, 28.12.2006 kl. 10:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.