hundasýning..
30.9.2008 | 11:59
Ég sýndi báða hundana um helgina, Kiddi minn var mér til aðstoðar, þær fengu báðar 1 einkunn og excellent, en hvorug komst áfram dómarinn hjá okkur schnauzer fólki var dálítið spar á verðlaunaborða, einnig hef ég heyrt að dómarinn hjá fleyrii tegundum hafi líka verið nokkuð spar á þetta en hvað um það þær stóðu sig vel báðar með fyrstu einkunn og ætti maður að vera ánægður með það, þetta eru fallegar tíkur og báðar með góða umsögn. Einn bróðir hennar Tívolí fékk þriðju einkunn sem er náttla ferlegt .
Í gær fór svo litla fjölskyldan af stað austur á Reyðarfjörð, Jóhann Helgi á að byrja á námskeiði á morgun, dótið þeirra fer reindar ekki af stað fyrr en á fimmtudaginn svo þau hafa ekkert þangað til dótið kemur en vinkona Báru á heima á Eskifirði og hún bauð þeim að vera hjá sér, kannski betra fyrir þau að vera þar þangað til að dótið skilar sér . Við fengum allt gefins fyrir þau, við hjálpuðumst að ég og Kiddi og pabbi Jóhanns Helga og þau fengu hjónarúm eldhúsborð og stóla, ísskáp, sófa ,þurkara, hillusamstæðu , sjónvarp , sjónvarpsskáp og ég og Kiddi komum svo til með að að gefa þeim þvottavél sem við fáum keypta notaða. svo þau eru komin með allt sem þau vantar. Bára átti svo fyrir allt það nauðsynlegast í eldhús .. ég er viss um að það verður bara fínt hjá þeim ...
hér er blómarósin þeirra hún Inga Guðrún.
Athugasemdir
Svo máttu ekki gleyma að þú varst flottasti sýnandinn
Kristberg Snjólfsson, 30.9.2008 kl. 12:22
Hún hefur eflaust fengið fína borða frá þér og heiðursverðlaun
Endilega koma kallinum í að sýna það er svo mikið kvennaveldi á þessum sýningum.
Fáið ykkur bara anna hund sem Kiddi getur sýnt.
Hafið það sem best og hvílið ykkur vel fyrir næstu sýningu sem verður í mars
Frændi spjara sig fyri austan enginn efi á því.
kveðja
Þ Þorsteinsson, 30.9.2008 kl. 18:07
Dömurnar allar þrjár hafa verið flottastar á sýningunni. Efast ekki um það. Synd að ekki skuli gefa verðlaun fyrir sýnandann hehe. Þið eruð æðislegar.
Kristín Jóhannesdóttir, 30.9.2008 kl. 19:52
Til hamingju með strákinn og vonandi vegnar þeim vel fyrir austan! Loftið er gott, útsýnið flott og ástin blindar allt!
Til lukku með þig og hundana!!! Kiddi hlýtur að vera stolltur af þrenningunni sinni (sýningargripunum sínum) hahahhaa ...´
www.zordis.com, 30.9.2008 kl. 19:53
Til hamingju með tíkurnar. Þær eru líka svo fallegar.
Gaman að heyra að ungt fólk byrji eins og unga fókið ykkar gerir. Heimtar ekki nýtt heldur notar það sem það fær.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 30.9.2008 kl. 20:43
Til hamingju með falllegu tíkurnar ykkar.Ekki slæmt þetta.
Ég er mjög sammála jórunni.
Solla Guðjóns, 1.10.2008 kl. 13:36
Til hamingju með voffalinga :)
Þarf að fara bjalla á þig
Vatnsberi Margrét, 1.10.2008 kl. 23:57
Til hamingju með tíkurnar þínar þær eru nú ekkert smá flottar
Guðborg Eyjólfsdóttir, 3.10.2008 kl. 11:47
Vá þið eigið heldur ekkert smá fallegar tíkur!!! Til hamingju með þær!!! Frábært að sjá hvað hefur gengið vel að hjálpa litlu fjölskyldunni. Biðjum að heilsa héðan úr Grindó
Telma (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 15:16
til lukku með allt saman
Ólafur fannberg, 4.10.2008 kl. 13:12
Til hamingju með hundana og krakkana :) he he he
Kristín Guðbjörg Snæland, 5.10.2008 kl. 14:33
Kvitt og risa kram!
Bessý bleika (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 15:01
til hamingju með þetta allt
kk
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 16:32
Woff woff woff!
Bragi Einarsson, 7.10.2008 kl. 12:53
Solla Guðjóns, 7.10.2008 kl. 13:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.