smá stress í gangi ...
17.9.2008 | 13:15
það er farið að gera vart við sig smá stress hjá mér út af væntanlegri hundasýningu sem verður seinustu helgina í sept,ég hef sýnt Bombu sjálf tvisvar sinnum og það gekk bara vel í annað skiptið fékk Bomban meistarastig . Við erum að fara með Tívolí í fyrsta skipti en Bomba er að fara í fjórða skipti og ég er svo mikill sauður að ég er að fara núna í kvöld með Tívolí í fyrsta skipti í sýningarþjálfun við förum auðvitað með þær báðar í þjálfun en það eru bara tvö skipti eftir vona bara að það dugi . Ég setti Tívolí í sýningartaum um daginn og hún horfði á mig eins og það væri eitthvað rugluð ( ekki láta ykkur detta í hug að ég sé rugluð) að vera fara fram á að hún trítlaði með mér í þessu hún er svo mikill þrjóskupúki . Við verðum bara að vona að sýningin gangi vel
Athugasemdir
Vona að allt gangi vel. Ég get rétt ímyndað mér hvernig Tívolí horfi á þig.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 17.9.2008 kl. 22:39
Þú massar þetta eins og venjulega Takk fyrir góðar kveðjur. Við þurfum að fara að hittast þetta gengur ekki.
Kristín Jóhannesdóttir, 18.9.2008 kl. 10:05
amm þarf að bæta úr þessu hittingsleysi
Margrét M, 18.9.2008 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.