..bara hóst..
16.9.2007 | 17:45
Það ætlar ekkert að ganga að verða hress. Druslaðist til læknis í gær þegar ég var nú alveg búin að fá nóg af astma-hóstaköstum, þá kom í ljós að hálsbólgan er löngu búin en hún hafði kveikt ansi vel í astmanum þrátt fyrir að ég hefði notað astmalyfin og það hefur orsakað berkjubólgu og bólgu í raddböndum takk fyrir, það orsakaði svo rámu röddina og raddleysið. Jæja líta á björtu hliðarnar ég er þá ekki að smita allan heiminn af hálsbólgu. Fékk ný astmalyf, ég sagði lækninum að ég færi til útlanda í næstu viku og þá gaf hann mér líka sýklalyf því ég var komin með kinnholubólgu með þessu öllu sem er allavega farin í dag ..Allavega er ég örlítið skárri af hósta í dag og hver veit nema ég geti farið til vinnu á morgun, ætla nú samt að sjá til hvernig ég verð í kvöld eða í fyrramálið, heilsan er mikilvægari en vinnan.
Hér var mjög gestkvæmt í gær sem var fínt því að það er svo leiðinlegt að hanga svona heima hjá sér, það er auðvitað alltaf gaman annars.
Athugasemdir
Kvitt og óskir um góðan bata
Gunnar Helgi Eysteinsson, 16.9.2007 kl. 19:23
Æji greyjið að vera svona lasin vonandi batnar þér fyrir London ferðina..
Kveðja
Olina Kristinsdottir Gulbrandsen, 16.9.2007 kl. 20:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.