Útilega ??? neibb
7.9.2007 | 16:14
Nei það er ekkert útileguveður það verður bara rigning og aftur rigning um helgina það stóð nú samt til að fara í útilegu sko..
Fyrst að það var enginn útilega þá var pantað eitt partý ( ég löngu búin að lofa heimboði einhverntíma) því venjubundnu haustgrillipartýi heima hjá framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem ég vinn hjá var slegið af vegna rigningarinnar að undanförnu og í staðinn á að vera haustfagnaður heima hjá okkur Kidda á laugardagskvöldið ég kem til með að elda fyrir liðið góðan indverskan rétt handa liðinu 18-20 manns ein kemur með grafna nautalund í forrétt og svo kemur ein með eftir rétt svo verður bara djammað fram á rauða nótt ..eða eitthvað svoleiðis (fliss) ekki get ég nú sagt að ég sé neitt partýdýr en ég get kannski allavega reint he he þær tilraunir hjá mér og Kidda mínum hafa yfirleitt endað með því að við förum bara heim kannski klukkan svona eitt eða tvö .
Athugasemdir
Við förum líka oftast heim fyrir tvö...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.9.2007 kl. 17:44
Girnilegur matseðill :)
Þið eruð duglegri en í svona partý dæmi. Góða skemmtun
Vatnsberi Margrét, 7.9.2007 kl. 18:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.