Listinn og haustfiðringur .
29.8.2007 | 13:29
Er búin að skrifa á minnismiða hverju má alls ekki gleyma, eru svona hlutir sem ég man stundum eftir þegar ég er komin heim úr vinnu ( þá er það of seint) eða hlutir sem að ég trassa, ekkert endilega sem liggur á en gott að klára jæja en kláraði allavega eitt í dag sem að var á listanum en bætti við 2 atriðum í staðin sem ég mundi þá eftir ..
Fæ alltaf svona fiðring á haustinn ,að fara að fara í skóla og læra eitthvað eða taka eitthvað námskeið en það líður alltaf hjá þannig að ég hef ekkert þurft að gera neitt í því ,,ha ha
Athugasemdir
Oh, hvað ég kannast við þetta
Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.8.2007 kl. 14:06
Þessi listi getur verið endalaus, ef út í það er farið.
Bragi Einarsson, 29.8.2007 kl. 17:01
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las þetta var að þú hefðir gleymt Kidda einhversstaðar.
Ef ekki........ mundu þá eftir að skrifa hann á listann líka.
Ingvar, 29.8.2007 kl. 19:22
Dugleg ertu búin að vera, útileiga og brjáluð rigning fyrir tjaldvagnafólk og góður matur við heimkomu! Löggur í felum, dæmigerð kópavogslögga thi hi hi hi ...
Skelltu þér á leirnámskeið .... væri það ekki gaman?
www.zordis.com, 29.8.2007 kl. 20:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.