jóla hvað..
4.5.2007 | 09:35
Gunna: Mikið voru blessuð jólin frábær. Fékk þvílíkt flottar gjafir og frábæran mat. En þú Fjóla mín var ekki allt eins og best var á kosið ??????
Fjóla: Ja Gunna mín, þetta var nú ekki alveg eins og best hefið verið. Nú klukkurnar hringdu inn jólin og ég var komin í mitt fínasta púss og gargaði á liðið að fá sér að borða.
Nú allir ruddust að borðinu og gerðu sér að góðu jólamatinn, nema þegar ég var á fullu sving að fá mér "væna flís af feitum sauð", heyrðist í Palla mínum, "Heyrðu Fjóla mín, viltu ekki fara smá varlega í matinn, þú lítur orðið út eins og heybindivél í vextinum".
Ég bara fékk flog, en hélt þó haus og var ekkert að æsa mig. Svo þegar búið var að opna pakkana og allir farnir að lúlla þá vildi nú Palli minn fá sitt!!!!
Ég snéri mér og horfði fast í augun á honum og sagði;
"ELSKU PALLI ÞÚ SKALT NÚ EKKI HALDA AÐ ÉG RÆSI HEILA HEYBYNDIVÉL FYRIR EITT LÍTIÐ STRÁ"
Athugasemdir
Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.5.2007 kl. 12:35
SKILNAÐ og það STRAX ....... Ojbara yndislegheit!
www.zordis.com, 4.5.2007 kl. 17:32
Kristberg Snjólfsson, 4.5.2007 kl. 18:46
Vatnsberi Margrét, 5.5.2007 kl. 00:57
Solla Guðjóns, 5.5.2007 kl. 03:03
Ljós til þín !
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.5.2007 kl. 11:53
Ólafur fannberg, 5.5.2007 kl. 12:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.