einn 5 aur
2.3.2007 | 14:29
Hér á eftir eru nokkrar spurningar og svör við þeim vegna námskeið fyrir ökumenn sem voru komnir með of marga refsipunkta. Þetta ku hafa lekið frá Umferðarráði eða lögreglunni.
Sp: Stöðvar þú bifreiðina þegar þú kemur að gangbraut og blindur maður er að fara yfir götuna?
Sv: Til hvers? Hann getur ekki séð bílnúmerið.
Sp: Hvað öryggisatriði er mikilvægast að hafa í huga þegar þú bakkar?
Sv: Alltaf að nota smokk.
Sp: Hvað gerir þú þegar ekið er í svarta þoku og hvaða búnað notarðu?
Sv: Nota bílinn að sjálfsögðu.
Sp: Hvað er best að gera til að draga úr slysum?
Sv: Þykjast ekki finna bíllyklana.
Sp: Hvernig myndi daglegt líf þitt breytast ef þú getur ekki lengur ekið löglega?
Sv: Ég yrði að aka ólöglega.
Sp: Hver er munurinn á rauða og gula umferðarljósinu?
Sv: Liturinn.
Athugasemdir
Góður þessi.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 3.3.2007 kl. 11:32
hahahahaha
Gerða Kristjáns, 3.3.2007 kl. 14:02
Gáfumenn á ferð
Solla Guðjóns, 3.3.2007 kl. 16:34
Guð sé lof voru ekki svona erfiðar spurningar þegar ég sótti um ökuskírteini.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 3.3.2007 kl. 18:45
Með ólíkindum að svona nokkuð standi skrifað!
www.zordis.com, 3.3.2007 kl. 22:43
hehehehehe bara skondið
Maggý Jónsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2007 kl. 12:06
Ólafur fannberg, 4.3.2007 kl. 13:23
Vatnsberi Margrét, 4.3.2007 kl. 13:33
Solla Guðjóns, 4.3.2007 kl. 18:45
hehe, ekki furða þó að þeir séu teknir í tugatali ef svörin eru svona
Bragi Einarsson, 4.3.2007 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.